Þessi frétt er meira en árs gömul
Málþing um sjálfbærni: erindi á vefnum
29. september 2009
Umhverfisfræðsluráð og Landvernd efndu til málþings um þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni fyrir skömmu. Erindi sem flutt voru á málþingi má nú horfa á á vefnum.
Þrjú erindi voru flutt á þinginu:
Drög að úttekt á menntun til sjálfbærni á Íslandi sem unnin er fyrir umhverfisfræðsluráð. Stefán Gíslason, Environice.
Umhverfislæsi – getum við lært af öðrum þjóðum? Andrés Arnalds, Landgræðslunni.
Þjóðaráætlun um menntun til sjálfbærni – hvað þarf til? Mike Littledyke og Rose Littledyke.
Að loknum erindum var efnt til pallborðsumræðna með þátttöku Þórunnar Pétursdóttur frá Landvernd, Eyglóar Friðriksdóttur, skólastjóra Sæmundarskóla í Reykjavík, Heimis Janusarsonar, fullrúa Alþýðusambands Íslands í umhverfisfræðsluráði, Maríu Guðmundsdóttur, frá Samtökum ferðaþjónustunnar, Gunnari Einarssyni, bæjarstjóri í Garðabæ og Ingólfi Ásgeiri Jóhannessyni, fulltrúi Getu rannsóknarhóps í HÍ og HA.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu Umhverfisráðuneytisins.
Frétt og mynd: Umhverfisráðuneytið