Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Þessi frétt er meira en árs gömul

Líforka á Hallormsstað

3. september 2009

Fjölbreytt erindi verða flutt á ráðstefnunni The PELLETime symposium 2009 sem nú stendur yfir á Hallormsstað.

Fjölbreytt erindi verða flutt á ráðstefnunni og koma fyrirlesararnir úr ýmsum áttum. Einn þeirra er Aasulv Løvdal, starfsmaður skógareigenda í Suðaustur-Noregi. Hann tók þátt í ráðstefnunni til að deila fjölbreyttri reynslu sinni, en auk þess að hafa starfað innan skógar- og líforkugeirans þekkir Aasulv vel til iðnaðrins. Eitt þeirra verkefna sem Aasulv þekkir vel til er að koma á fót kurlkyndistöðvum eins og þeirri sem nú er unnið að á Hallormsstað. Hann fundaði því á dögunum með Orkuskógum hf sem standa fyrir byggingu kyndistöðvarinnar á Hallormsstað. „Við í Noregi eru vön því að hafa alltaf haft ódýrt rafmagn og aðgengi að olíu, svo þessi kyndingarlausn hefur ekki verið mikið notuð hingað til," segir Aasulv. Hann telur að nýir tímar kalli hins vegar á að kyndistöð sem þessar sé vænlegur kostur þar sem aðstæður eru líkar þeim á Hallormsstað.

Frekari upplýsingar um PELLETime má finna á vefsíðu verkefnisins.