Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kolbjörk

3. september 2009

Rannsóknir á endurheimt birkiskóga.

Nú vinna í verkefninu þrír framhaldsnemar; einn íslenskur doktorsnemi frá Ohio State Univeristy í Bandaríkjunum og tveir meistaranemar frá Landbúnaðarháskóla Íslands og Háskólanum í Basel í Sviss, auk öflugs hóps sérfræðinga frá öllum þremur stofnununum sem að verkefninu standa. Rannsakaðir eru fjölmargir þættir vistkerfisins, svo sem jarðvegseiginleikar, jarðvegslíf, gróðurfar, flæði kolefnis, kolefnisforði í lífmassa og jarðvegi, trjávöxtur, o.fl..

Nú í sumar er m.a. búið að grafa fjölmörg jarðvegssnið til að mæla breytingar á jarðvegseiginleikum sem verða í kjölfar landgræðslu á orfoka landi og með endurheimt birkiskóga. Einnig fara fram stöðugar mælingar á kolefnisupptöku og kolefnislosun svæðanna. Með þessum rannsóknum eykst skilningur á kolefnishringrás náttúrulegra birkiskóga og hvaða umhverfisþættir það eru sem takmarka vöxt þeirra. Einnig fara nú í ágúst fram mælingar á þeim breytingum sem verða á lífríkinu (gróðurfar og jarðvegslíf) í kjölfar endurheimtar á örfoka svæðum í kringum Heklu.

Um mynd:Meistaraneminn Matthias Hunziker frá Basel háskóla er að vinna rannsókn sem fjallar kolefnisforða í birkiskógum, bæði ofanjarðar og neðan. Hann er hér í Hraunteig í landi Næfurholts og Hóla undir Heklu við uppskerumælingar á rótarkerfi birkis. Hann fylgir rótunum þar til þær eru aðeins 2 mm í þvermál (svokallaðar grófrætur) og það tekur u.þ.b. 4 daga að mæla hvert tré.

(mynd: Guðmundur Halldórsson, Landgræðslu ríkisins)