Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Land og skógur Forsíða
Land og skógur Forsíða

Land og skógur

Þessi frétt er meira en árs gömul

Kennaranámskeið um ,,flæðinám" í Ólaskógi

3. september 2009

Í ágúst sóttu 40 leik- og grunnskólakennarar útinámskeið í svokölluðu flæðinámi þar sem notaðar voru aðferðir Joseph Cornells sem rekur samnefndan háskóla í Bandaríkjunum

Margrét og Ása leiddu þátttakendur um skóginn í ýmsum skemmtilegum verkefnum sem byggja á virkri þátttöku, sköpun og upplifun þátttakenda í einstaklingsvinnu og í hópstarfi. Aðferðirnar eru notaðar sem tæki í innsettningu og kveikju í útinámi og ætlað að vekja áhuga nemenda á frekari vinnu í útinámi og spilar leikurinn og gleðin því stórt hlutverk í þessum aðferðum. Aðferðirnar eru kerfisbundnar og faglegar og ætlað að tryggja hámarks árangur nemenda í skólastarfi.

Eins og sjá má á myndunum nutu þátttakendur sín í blíðu veðri og skógarumhverfi. Þess má geta að Ása og Margrét skrifuðu lokaritgerð sína í B.Ed námi við KHÍ um LÍS- verkefnið og tengdu öll fög grunnskólans við skóginn og notuðu Cornell aðferðirnar til þess. Þegar námskeiðið var auglýst í vor fylltist það á örfáum dögum. Því má gera ráð fyrir að hér sé aðeins um fyrsta Cornell námskeiðið að ræða og fleiri eigi eftir að bætast við síðar. Námskeiðið var haldið af LÍS-verkefninu í samvinnu við Náttúruskóla Reykjavkur. Þeir sem vilja leita frekari upplýsinga er bent á að hafa samband við Margréti Láru (margret(hjá)gbf.is), Ásu (asa(hjá)varmaland.is) eða Ólaf Oddsson (oli(hjá)skogur.is).