Ísland.is
  <description>Ísland.is</description>
Færri hegningarlagabrot á Austurlandi
  <description>Hegningarlagabrot á Austurlandi eru 23% færri fyrstu níu mánuði ársins 2026 en þau voru að meðaltali fyrstu níu mánuði áranna 2021–2025. </description>
Lagt hald á amfetamín og ketamín – fjórir í gæsluvarðhaldi
  <description>Fjórir karlar voru í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í áframhaldandi fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 28. október, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á  höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á innflutningi fíkniefna. Þrír mannanna voru handteknir í fyrrihluta september og sá fjórði viku síðar, en málið varðar innflutning á 5 kg af amfetamíni í hraðsendingu frá Þýskalandi.</description>
Alvarleg líkamsárás í Kópavogi
  <description>Karlmaður á fimmtugsaldri er í haldi Lögreglunnar  á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í íbúð fjölbýlishúss í Kópavogi í gærkvöld. </description>
Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
  <description>Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Bústaðavegi, Arnarnesvegi, Flatahrauni, Sæbraut, Norðurströnd og í Skógaseli.</description>
Ölvunar- og fíkniefnaakstur
  <description>Það var sitthvað að fást við á helgarvaktinni, en m.a. voru tuttugu og fjórir ökumenn teknir fyrir ölvunar- og fíkniefnaakstur á höfuðborgarsvæðinu. </description>
Fjöldi tilkynninga vegna heimilisofbeldis milli foreldra og barna tvöfaldast frá 2019 
  <description>Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 hefur verið birt á vefsvæði lögreglunnar. </description>
Umfangsmikil rannsókn – sex í gæsluvarðhaldi
  <description>Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær eftir að Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu réðist í viðamiklar aðgerðir í umdæminu í þágu rannsóknar hennar á fíkniefnamisferli og peningaþvætti. </description>
Eftirför í kjölfar afskipta
  <description>Í morgun voru lögreglumenn við hraðamælingar á Reykjanesbraut, skammt frá Vogum, er þeir mældu hraða bifreiðar langt yfir leyfilegum hámarkshraða. Við afskipti af ökumanni kemur í ljós að hann hefur ekki öðlast ökuréttindi en á meðan þessum afskiptum stendur fer ökumaður af vettvangi. </description>
Punktastaða og yfirlit sviptinga ökuréttinda á Mínum síðum
  <description>Frá og með deginum í dag, þriðjudaginn 22. september, geta einstaklingar nálgast upplýsingar um punktastöðu vegna umferðarlagabrota og sviptingar ökuréttinda inni á Mínum síðum á Ísland.is. </description>
Innbrot í eldisbú upplýst
  <description>Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugrís á Kjalarnesi, Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi. </description>
Varúð! Svikasmáskilaboð með innheimtu ófullbúinna bifreiðagjalda í dreifingu
  <description>Lögreglan varar við smáskilaboðum sem eru að berast einstaklingum í nafni Skattsins. Í skilaboðunum kemur fram að kerfisendurskoðun bifreiða sýni ófullbúna stöðu upp á 3.450 ISK. </description>
Fjölmennt á Ljósanótt 
  <description>Mikill mannfjöldi sótti viðburði Ljósanætur í gær, allt frá morgni til kvölds. Hátíðin náði hápunkti í gærkvöldi þegar stórtónleikarnir fóru fram og flugeldasýning</description>
Ljósanótt fer vel af stað
  <description>Mikill fjöldi gesta sóttu fjölbreytta viðburði um allan bæ og hefur hátíðin farið vel fram.  </description>
Breyttur útivistartími 1. september
  <description>Útivistartími barna og unglinga tekur breytingum 1. september. Frá þeim tíma mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00. 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum/forráðamönnum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnum sínum reglur um styttri útivistartíma.</description>
Banaslys á Krýsuvíkurvegi
  <description>Þrjú ungmenni létust í umferðarslysi á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti í nótt, en tilkynning um slysið barst kl. 0.19. Ungmennin, piltur og tvær stúlkur, voru öll í bifreið sem hafnaði utan vegar. Henni var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.
Umferð þyngist á álagstímum
  <description>Þessa vikuna er skólastarfið að hefjast á nýjan leik eftir sumarleyfi og margir eru örugglega spenntir að setjast aftur á skólabekk og hitta vinina. Lögreglan minnir ökumenn á að aka varlega, ekki síst í námunda við skóla enda margir þar á ferli, m.a. nýir vegfarendur sem eru að fara að hefja skólagöngu. </description>
Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
  <description>Hér eru niðurstöður hraðamælinga úr umdæminu í síðustu viku, en myndavélabíll Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var við hraðaeftirlit á Miklubraut, Arnarnesvegi, Suðurlandsvegi, Korpúlfsstaðavegi, Vesturlandsvegi, Reykjanesbraut og í Austurbergi.</description>
Varúð! Svikapóstar í nafni lögreglu og ríkislögreglustjóra
  <description>Embætti ríkislögreglustjóra berast nú tilkynningar um tölvupóst þar sem lögregla er ranglega titluð sem sendandi. Í póstinum er fylgiskjal sem er ranglega merkt ríkislögreglustjóra, „Innanríkaráðuneytið“ undir stjórn „Dómslögreglu“.  </description>
Hátt í sjötíu nýnemar í lögreglufræði í haust
  <description>Alls hefja 67 nemendur nám í lögreglufræði fyrir verðandi lögreglumenn við Háskólann á Akureyri í haust, 39 prósent konur og 61 prósent karlar. </description>
Almyrkvi á sólu 12. ágúst – gott að vita
  <description>Takmarkanir á aðgengi 
Seltjarnarnes: Suðurströnd verður lokuð fyrir bílaumferð frá Vivaldi-velli / sundlaug að austanverðu og við Lindarbraut og Nesbala að vestan frá kl. 15.00 til 19.00. Allar þvergötur sem liggja að Suðurströnd verða einnig lokaðar. Bent er á bílastæði við sundlaug, Austurströnd og Eiðistorg. Lokað verður fyrir akstur um Norðurströnd vestan Lindarbrautar frá kl. 15.00 til kl. 19.00. Bent er á bílastæði við Austurströnd og Eiðistorg. Ekki er leyfilegt að fara út í Gróttu þann 12. ágúst. Flóð er á meðan almyrkva stendur. Akstursleið út að Gróttu verður lokuð við Lindarbraut frá kl. 15.00 og til kl. 19.00. Strætó fær að keyra um Seltjarnarnesið óháð lokunum til að auðvelda fólki að komast ferða sinna og nær vestursvæðum Seltjarnarness þar sem gera má ráð fyrir að flestir vilji koma sér fyrir.
Reykjavík: Suðurgata verður lokuð fyrir akstri við Hringbraut frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Allar þvergötur Suðurgötu verða einnig lokaðar nema Þórsgata en um hana er opið fyrir umferð í Skerjafjörð. Ægisíða verður lokuð fyrir bílaumferð við Hofsvallagötu, Fornhaga og Dunhaga frá kl. 15.00 til kl. 20.00. Einnig verður lokað fyrir bílaumferð við Lynghaga og Starhaga á þessum tíma.
Garðabær: Einstefnuakstur (hringakstur) verður um Álftanes frá kl. 15:00 til kl. 20:00 í norður- og vesturátt, um Norðurnes- og Suðurnesveg frá hringtorgi við Bessastaðaafleggjara. Hámarkshraði verður tekinn niður í 30 km/klst á hluta Suðurnesvegar. Bílastæði verða útbúin við óbyggðar lóðir í Gásamýri og Svanamýri auk þess sem hægt verður að leggja í grennd við íþróttamiðstöðina á Álftanesi. 
Hafnarfjörður: Vegna viðburðar á Víðistaðatúni verður götum í næsta nágrenni lokað eða umferð skert þann 12. ágúst. Frá kl. 10 að morgni til miðnættis verður lokað fyrir umferð um Hamrabrún við gatnamót Hraunbrúnar og Garðavegs. Íbúum verður þó leyft að aka götuna og munu þeir fá sérstaka aksturspassa afhenta hjá viðburðahöldurum sem verða með gæslu við Hamrabrún þann 12. ágúst. Hafa íbúar aðgang að Hambrabrún frá Reykjavíkurvegi eða Hjallabraut. Ekki verður hægt að aka um Hraunbrún frá Hellisgötu eða Garðavegi. Frá kl. 11 að morgni til kl. 15 síðdegis og frá kl. 20 til 23 þann 12. ágúst verður umferð stýrt um Hjallabraut og umferð því takmörkuð þar á þeim tímum.
Vitni óskast
  <description>Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás er átti sér stað á Brekastíg um kl. 19:30, laugardaginn 1. ágúst s.l.  Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem svo fór í burtu.  Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið.
Þau sem urðu vitni að líkamsárásinni eða hafa einhverjar upplýsingar um hana eru beðin að hafa samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í síma 444 2090 eða senda tölvupóst á netfangið vestmannaeyjar@logreglan.is.</description>
Mannslát í Kópavogi – tveir í gæsluvarðahaldi
  <description>Tveir karlar voru í dag í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti í Kópavogi í gær. Annar mannanna var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. ágúst, en hinn til 17. ágúst. Annar þeirra er íslenskur, en hinn er erlendur ríkisborgari. </description>
Aukinn viðbúnaður lögreglu og viðbragðsaðila vegna almyrkva á sólu á Reykjanesi 12. ágúst næstkomandi 
  <description>Lögreglan á Suðurnesjum, björgunarsveitir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Brunavarnir Suðurnesja og Slökkvilið Grindavíkur verða með aukinn viðbúnað vegna almyrkvans á sólu miðvikudaginn 12. ágúst.</description>
Mannslát
  <description>Maðurinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi lést á Landspítalanum síðdegis.
Einn var handtekinn fljótlega eftir að málið kom upp og nokkrir til viðbótar í aðgerðum lögreglu í austurhluta Reykjavíkur.
Rannsókn málsins er í algjörum forgangi hjá embættinu, en ekki verða veittar frekari upplýsingar að svo stöddu.
Líkamsárás í Kópavogi
  <description>Karlmaður var fluttur á slysadeild eftir alvarlega líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi í dag, en tilkynning um málið barst um þrjúleytið. Einn hefur verið handtekinn, en rannsókn málsins er á algjöru frumstigi.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.