Ísland.is
  <description>Ísland.is</description>
Nýtt rit: Geislálag starfsfólks – yfirlit fyrir árin 2014 - 2024 
  <description>Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu um eftirlit með geislaálagi starfsfólks fyrir tímabilið 2014 – 2024.</description>
Nýtt rit: Geislun í tannröntgenmyndum og landsviðmið
  <description>Geislavarnir ríkisins hafa birt skýrslu um niðurstöður mælinga á geislaskömmtum við hefðbundnar tannröntgenmyndir í munnholi (e. intraoral, IO) fyrir tímabilið 2018 – 2024 og við kjálkabreiðmyndir (OPG) fyrir tímabilið 2023 – 2025. </description>
Sólmyrkvinn á morgun – gætum öryggis
  <description>Á morgun, 12. ágúst, verður almyrkvi á sólu sýnilegur á vestanverðu Íslandi. Í öðrum landshlutum verður deildarmyrkvi, þar sem tunglið mun ekki ná að hylja sólina að fullu. 
Hvort sem fylgst er með almyrkvanum eða deildarmyrkvanum er mikilvægt að gæta fyllsta öryggis. Sé horft beint í sólina þarf ávallt að nota sérstök sólmyrkvagleraugu. Venjuleg sólgleraugu eru ekki örugg til þess að horfa á sólina í sólmyrkva. </description>
Hugum að sólarvörnum
  <description>Nú er kominn sá tími árs þegar sólin á Íslandi er nægilega sterk til að valda húðbruna. Það er vel þekkt að húðbruni eykur líkur á húðkrabbameini síðar á ævinni og því er fólk hvatt til að huga að sólarvörnum. Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir útfjólubláum geislum sólar og því þarf að vernda þau sérstaklega vel. Auk húðbruna geta útfjólubláir geislar valdið skaða á augum og flýtt fyrir hrukkumyndun og öldrun húðarinnar.</description>
Ísland tók þátt í tíunda rýnifundi Convention on Nuclear Safety
  <description>Sendinefnd frá Íslandi, skipuð fulltrúum Geislavarna ríkisins, tók þátt í tíunda rýnifundi CNS (Convention on Nuclear Safety) sem haldinn var í Vínarborg dagana 13.–17. apríl 2026. </description>
Málþing: 40 ár frá Tsjernobylslysinu
  <description>Þann 26. apríl næstkomandi verða liðin 40 ár frá kjarnorkuslysinu í Tsjernobyl. Af því tilefni efna Geislavarnir ríkisins og námsbraut í geislafræði við Háskóla Íslands, til málþings um áhrif kjarnorkuslysa, þróun geislavarna og viðbúnað við geislavá á Íslandi.</description>
Niðurstöður mælinga Geislavarna ríkisins á geislavirkni í umhverfi á árunum 2021–2022 birtar
  <description>Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu um niðurstöður mælinga á geislavirkni í umhverfinu á árunum 2021-2022. Kerfisbundin vöktun á geislavirkni í umhverfi á Íslandi hófst seint á níunda áratug síðustu aldar. Sérstök áhersla er á reglulegar mælingar á geislavirku sesíni (Cs-137) í matvælum og umhverfi.</description>
Geislavarnir og gæðastjórnunarkerfi
  <description>Nýlega sendu samtök forstjóra geislavarnastofnana í Evrópu (HERCA) frá sér yfirlýsingu um nauðsyn þess að, þar sem geislun er notuð, séu geislavarnir fléttaðar inn í gæðastjórnunarkerfið.</description>
Notkun geislunar í læknisfræði: Áhersla á réttlætingu árið 2026
  <description>Þegar röntgengeislun er notuð í læknisfræði þá er réttlæting sérhverrar rannsóknar eða meðferðar ein meginstoð geislavarna. Möguleg skaðsemi röntgengeislunar er vel þekkt, en samt er hún mikið notuð í læknisfræði vegna þess að þegar á heildina er litið vegur ávinningurinn miklu þyngra en möguleg skaðsemi. </description>
Niðurstöður mælinga Geislavarna ríkisins á geislavirkni í umhverfinu á árunum 2016-2020 birtar
  <description>Geislavarnir ríkisins hafa gefið út skýrslu um niðurstöður mælinga á geislavirkni í umhverfinu á árunum 2016-2020. Kerfisbundin vöktun á geislavirkni í umhverfi á Íslandi hófst seint á níunda áratug síðustu aldar. Sérstök áhersla er á reglulegar mælingar á geislavirku sesíni (Cs-137) í matvælum og umhverfi.</description>
HERCA herferð: Rétt myndgreining fyrir sjúklinginn minn
  <description>Samtök evrópskra geislavarnastofnana (HERCA) hafa sett af stað samskiptaherferð til að vekja athygli á og ýta undir notkun viðeigandi myndgreiningar. Geislavarnir ríkisins eru virkur meðlimur í samtökunum.</description>
Skýrsla Íslands fyrir 10. Rýnifund alþjóðasáttmála um kjarnöryggi skilað
  <description>Geislavarnir ríkisins hafa lagt fram skýrslu Íslands um kjarnöryggi fyrir 10. rýnifund alþjóðasáttmála um kjarnöryggi (Convention on Nuclear Safety, CNS) sem haldinn verður í höfuðstöðvum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) í Vínarborg vorið 2026. Samningurinn tók gildi 24. október 1996 en Ísland varð fullgildur aðili að honum haustið 2008. Í umboði Utanríkisráðuneytisins taka Geislavarnir ríkisins saman skýrslu á þriggja ára fresti um hvernig Ísland uppfyllir kröfur samningsins.</description>
29. ágúst: Alþjóðlegur dagur gegn kjarnorkutilraunum 
  <description>Dagurinn 29. ágúst er alþjóðlegur dagur gegn kjarnorkutilraunum.</description>
Um geislavirk efni í neytendavörum 
  <description>Eftir að hafa fengið ábendingu um að verið væri að selja vöru sem innihéldi geislavirk efni á Íslandi létu Geislavarnir ríkisins innkalla vöruna í byrjun árs 2024. Í kjölfar þess ákvað stofnunin að gera markaðskönnun á því hvort verið væri að selja fleiri vörur hérlendis sem innihéldu geislavirk efni. </description>
Staðan í Íran: Engar vísbendingar um aukna geislun eftir árásir á kjarnorkumannvirki 
  <description>Geislavarnir ríkisins hafa fylgst náið með þróun mála í Íran eftir loftárásir Ísraels sem beindust að nokkrum kjarnorkustöðvum í landinu þann 13. júní síðastliðinn. Bandaríkin réðust svo á þrjár kjarnorkustöðvar í Íran þann 22. júní, þar á meðal tvær stöðvar sem eru með skilvindur til að auðga úran. </description>
Innköllun á vöru: Límmiðar merktir Quantum Shield
  <description>Geislavarnir ríkisins vekja athygli á innköllun á vörunni Quantum Shield – Nano technology. Um er að ræða límmiða sem framleiddir eru af Fan Yun Craft Electronics Co í Kína. Varan inniheldur geislavirkt efni í litlu magni og ef límmiðarnir eru upp við húð valda þeir óþarfa geislun á fólk. Geislun frá geislavirkum efnum getur valdið skaða á fólki og aukið líkur á krabbameini.  </description>
Árás Ísraelshers á kjarnorkuinnviði í Íran 
  <description>Ísraelsher gerði árásir á innviði í Íran síðastliðna nótt. Meðal þeirra svæða sem urðu fyrir árás eru Natanz þar sem auðgun úrans fer fram. Natanz er staðsett um 300 km sunnan við höfuðborgina Teheran. </description>
Samstarf Norðurlandanna á sviði kjarnöryggis og geislavarna eflt 
  <description>Birt hefur verið stefnuskýrsla norrænu geislavarnastofnananna á sviði kjarnöryggis og geislavarna: "Nordic Strategy Group Report: Enhancing Nordic cooperation in Nuclear and Radiation Safety". Geislavarnastofnanir allra Norðulandanna tóku þátt í verkefninu: DEMA (Danmörk), DSA (Noregur), GR (Ísland), SIS (Danmörk), SSM (Svíþjóð) og STUK (Finnland). </description>
Nú þarf að huga að sólarvörnum á Íslandi
  <description>Nú er kominn sá tími árs þegar sólin á Íslandi er nægilega sterk til að valda húðbruna. Það er vel þekkt að húðbruni eykur líkur á húðkrabbameini síðar á ævinni og því er fólk hvatt til að huga að sólarvörnum. Börn eru viðkvæmari en fullorðnir fyrir útfjólubláum geislum sólar og því þarf að vernda þau sérstaklega vel. </description>
Heilbrigðisráðherra heimsótti Geislavarnir
  <description>Alma D. Möller heilbrigðisráðherra heimsótti Geislavarnir ríkisins í liðinni viku.</description>
Geislavarnir auglýsa tímabundið starf / sumarstarf með mögulegri framlengingu 
  <description>Við leitum að metnaðarfullum og skipulögðum starfsmanni með bakgrunn í raungreinum á háskólastigi til að starfa með okkur sumarið 2025 og e.t.v. lengur. Þetta er einstakt tækifæri til að afla sér reynslu og kynnast fjölbreyttum verkefnum stofnunarinnar.  </description>
Drónaárás á Tsjernobyl – Geislun í umhverfinu óbreytt
  <description>Á öðrum tímanum í nótt, aðfaranótt 14. febrúar, var skv. yfirvöldum í Úkraínu gerð drónaárás á skýlið sem reist var utan um rústir Tsjernobyl kjarnorkuversins í Úkraínu. Eldur kviknaði í hjúpnum og logaði á um 40 fm. svæði kl. 8 í morgun að staðartíma. Eldurinn hefur síðan verið slökktur. Ekki hefur mælst aukin geislun á svæðinu í kjölfar þessa.</description>
Notkun og fjöldi ljósabekkja á Íslandi - ný gögn
  <description>Hlutfall þeirra sem hafa farið í ljós síðustu 12 mánuði á Íslandi er nú 5% og er það einu prósentustigi lægra en í síðustu könnun sem gerð var 2022. Þetta sýna nýlegar niðurstöður könnunar á notkun ljósabekkja á Íslandi sem Gallup gerði fyrir samstarfshóp Geislavarna, Embættis Landlæknis, húðlækna og Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins. Einnig fækkar ljósabekkjum á Íslandi skv. síðastu talningu Geislavarna á fjölda ljósabekkja sem gerð var 2023. Þá var fjöldi ljósabekkja á Íslandi 86 en til samanburðar var fjöldinn 97 árið 2020. Geislavarnir ráða fólki frá því að nota ljósabekki enda fylgir notkun þeirra aukin hætta á húðkrabbameini. </description>
Vöruvaktin er nýr vefur fyrir neytendur um gallaðar eða hættulegar vörur 
  <description>Vöruvaktin er nýr vefur sem miðlar upplýsingum til neytenda um gallaðar eða hættulegar vörur. Á vefnum má einnig finna almenna fræðslu í tengslum við vöruöryggi auk þess sem almenningur getur sent inn ábendingar um hættulegar eða ólöglegar vörur.  </description>
Heimsóknir bandarískra kjarnorkuknúinna kafbáta 
  <description>Í fyrra, þann 18. apríl 2023, tilkynnti utanríkisráðherra stjórnvöldum í Bandaríkjunum að kjarnorkuknúnum kafbátum yrði heimilt að hafa viðkomu við Íslandsstrendur. Síðan þá hafa nokkrir kafbátar komið í þjónustuheimsóknir í íslenska landhelgi. Síðasta þjónustuheimsóknin var síðastliðinn október, eins og greint hefur verið frá í íslenskum fjölmiðlum. </description>