10000 leitarniðurstöður
Bergþóra Lísa Björnsdóttir, næringarfræðingur og nemi í klínískri næringarfræði við Háskóla Íslands, kom í tímabundið verkefni til HSN í sumar.
Fjölmenni var á Tengjum ríkið í ár sem fór fram þann 18. september á Hilton Nordica sem og sent út í streymi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Miklubraut í Reykjavík í morgun, en tilkynning um slysið barst kl. 8.35.
Skráð atvinnuleysi í júlí var 3,4% og var óbreytt frá síðasta mánuði.
Sjúkratryggingar, Klíníkin Ármúla ehf. og Stoðkerfi ehf. í samstarfi við Læknahúsið DEA Medica hafa gert með sér samning um framkvæmd liðskipta-, bak-, kviðsjár-, og brjóstaminnkunaraðgerða með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga til næstu þriggja ára.
Vinnumálastofnun hefur gefið út skýrslu um vinnumarkaðinn á fyrri helmingi ársins 2025.
Þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ verður lokuð frá og með mánudeginum 18. ágúst vegna flutninga.
Blaðlýs virðast vera helsti skaðvaldurinn á plöntum í Surtsey í ár en beit þeirra var þó ekki mikil, samkvæmt rannsóknum Brynju Hrafnkelsdóttur, skordýrafræðings hjá Landi og skógi, sem vann meðal annars að skrásetningu blaðlúsa og annarra beitarskordýra í eynni nú í júlímánuði.
Við höfum tekið í notkun nýtt símkerfi með það að markmiði að bæta enn frekar símsvörun og stytta biðtíma þegar hringt er til okkur. Þetta er liður í umbótastarfi Tryggingastofnunar, en til okkar leita fjölmargir símleiðis til að fá aðstoð og upplýsingar. Sem dæmi bárust rúmlega 67.000 símtöl árið 2023 til TR eða um 5.500 á mánuði að jafnaði. Mikilvægt er fyrir okkur að hafa öflugt símkerfi til að sinna viðskiptavinum okkar sem best. Í kjölfar innleiðingarinnar geta orðið einhverjar tafir fyrstu dagana og biðjum við viðskiptavini um að sýna okkur þolinmæði.
Aukin útvistun opinbers eftirlits meðal tillaga hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar.