10000 leitarniðurstöður
Barna- og fjölskyldustofa hefur framleitt ný rafræn námskeið um kynferðisofbeldi gagnvart börnum, ætluð öllum þeim sem koma að starfi með börnum upp að 18 ára aldri.
Þegar vorar og sólargeislarnir brjótast fram til að veita okkur kærkomna birtu og hlýju, flykkist fólk út til að njóta útiveru og sólarinnar. Sólin gefur okkur hlýju en einnig útfjólubláa geislun sem getur skaðað okkur ef við förum ekki varlega.
UNICEF á Íslandi, Rauði krossinn á Íslandi og Barna- og fjölskyldustofa (BOFS) hafa í samstarfi unnið fræðslumyndband um börn á flótta.
Í Farsóttafréttum að þessu sinni er fjallað um spítalasýkingar og sýklalyfjanotkun í löndum ESB/EES og öndunarfærasýkingar hér á landi veturinn 2023-2024.
Miðvikudaginn 12. janúar 2022 kl. 14-16 verður boðið upp á örvunarbólusetningu gegn Covid-19 í Heilsugæslustöðinni Borgarnesi á meðan birgðir endast.
Embætti landlæknis hefur skrifað undir samning við kanadíska fyrirtækið Think Research um afnot af stöðluðum fyrirmælum fyrir sjúklinga sem innleidd verða í rafræna sjúkraskrá á landsvísu. Um er að ræða fyrirmæli fyrir sjúklinga með langvinna lungnasjúkdóma og fyrir konur í fæðingu. Landspítalinn er aðalsamstarfsaðili embættisins að verkefninu.
Bólusett verður í Íþróttahúsinu Vesturgötu miðvikudaginn 16.mars milli kl 11 og 12 f.h.
Síðasti dagur til að senda inn beiðni um hlutdeildaflutning á fiskveiðiárinu 2022/2023 er 31. júlí 2023.
Hulda Gestsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands frá 1. október n.k.
Í lok árs 2022 var útgáfa á rafrænum dánarvottorðum innleidd. Rafræn dánarvottorð fara á sama tíma til sýslumanns, embættis landlæknis og Þjóðskrár. Hér sparast mörg spor fyrir aðstandendur og opinberar stofnanir.