Á síðustu mánuðum hefur öldruðum einstaklingum sem liggja inni á Sjúkrahúsinu á Akureyri og bíða eftir hjúkrunarrými fjölgað og að meðaltali eru milli 20-25% bráðarýma SAk upptekin af þessum sökum. Rúmanýting á bráðalegudeildum SAk er oft yfir 100% og talið er ásættanlegt að um 5% rýma á sjúkrahúsum séu nýtt af einstaklingum sem bíða eftir úrræði á hjúkrunarheimili.