Fara beint í efnið

Langtímavegabréfsáritun

Umsókn um langtímavegabréfsáritun

Langtímavegabréfsáritun veitir heimild til dvalar á Íslandi í allt að 90 daga umfram þann tíma sem einstaklingur mætti að öllu jöfnu dvelja á landinu sem ferðamaður, hvort sem hann er áritunarskyldur eða ekki. 

Langtímavegabréfsáritun er einungis heimilt að gefa út einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili.

Handhafi langtímavegabréfsáritunar fær ekki kennitölu og má ekki stunda atvinnu á Íslandi.

Skilyrði 

Þú getur fengið útgefna langtímavegabréfsáritun ef:

  • þú ert í löglegri dvöl hér á landi,

  • þú ætlar þér ekki að setjast að á landinu,

  • tilgangur dvalarinnar fellur ekki undir neinn dvalarleyfisflokk,

  • þú hefur ekki fengið útgefna langtímavegabréfsáritun á síðustu 12 mánuðum.

Dæmi

Dæmi um tilvik þegar heimilt er að gefa út langtímavegabréfsáritun:

  • Til nánustu aðstandenda sem vilja dvelja lengur á Íslandi. Nánustu aðstandendur eru makar/sambúðarmakar, börn undir 18 ára aldri og foreldrar.

  • Til vitna eða aðila að dómsmáli sem þurfa að dveljast hér vegna reksturs málsins.

  • Til útlendinga sem hingað koma í öðrum lögmætum tilgangi, svo sem listamanna, vísindamanna eða íþróttamanna, ef dvöl þeirra kallar ekki á útgáfu dvalar- og/eða atvinnuleyfis.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds. Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar.

Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi

Kostnaður

Gjald fyrir umsókn um langtímavegabréfsáritun er 12.200 kr, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds. Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda. Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.

Umsóknarfrestur

Nauðsynlegt er að þú sækir um langtímavegabréfsáritun tímanlega. Ef þú ert áritunarskyld/-ur þarftu að sækja um þegar minnst 14 dagar eru eftir af gildistíma áritunar. Ef þú ert ekki áritunarskyld/-ur þarftu að sækja um minnst 14 dögum áður en 90 dagar eru liðnir frá því að þú komst inn á Schengen-svæðið.

Fylgigögn

Ef fullnægjandi gögn berast ekki til Útlendingastofnunar með umsókninni getur það leitt til þess að afgreiðsla umsóknar tefjist eða að umsókninni verði synjað. Útlendingastofnun getur óskað eftir viðbótargögnum þegar sérstakar ástæður mæla með því.

  • Greiðslukvittun, ef greitt hefur verið fyrir umsóknina í banka.

    • Koma þarf skýrt fram fyrir hvern er verið að greiða. Skráið nafn og fæðingardag umsækjanda í tilvísun.

  • Passamynd (35x45 mm) ekki eldri en 6 mánaða.

  • Ljósrit vegabréfs.

    • Gildistími vegabréfs skal vera minnst 90 dagar umfram gildistíma áritunar.

    • Ljósrit þarf að vera af:
      - persónusíðu
      - síðu með undirskrift umsækjanda
      - áritunum 
      - komu- og brottfararstimplum inn á og út af Schengen-svæðinu á síðastliðnu ári. 

  • Gögn sem staðfesta tilgang dvalar hér á landi, til dæmis:
    - boðsbréf frá gestgjafa
    - staðfesting á dvöl í listasetri
    - skjöl frá dómstólum vegna málsmeðferðar
    - eða greinargerð þar sem tilgangi dvalar hér á landi er lýst.

  • Gögn sem sanna að framfærsla umsækjanda sé trygg þann tíma sem dvalið er hér á landi.

  • Ferðasjúkratrygging fyrir þann tíma sem þú dvelur hér á landi. 

  • Farmiði fyrir heimferð eða sönnun þess að þú hafir fjárráð til að greiða fyrir heimför þegar dvöl hér á landi lýkur.

  • Ef ástæða þykir til getur Útlendingastofnun farið fram á að umsækjandi skili inn sakavottorði.

Gögn sem er heimilt að leggja fram

  • Umboð. Í frumriti, vottað af tveimur vottum.

Umboð þarf ekki að berast nema þú viljir að annar einstaklingur geti fengið upplýsingar um vinnslu umsóknar þinnar.

Lög og reglugerðir

Lög um útlendinga, nr. 80/2016
Reglugerð um útlendinga, nr. 540/2017

Umsókn um langtímavegabréfsáritun

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun