Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir brjóstamyndgreiningar á Landspítala

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.05.2024

Umsóknarfrestur

31.05.2024

Yfirlæknir brjóstamyndgreiningar á Landspítala

Spennandi tækifæri á Brjóstamiðstöð Landspítala.

Við leitum að metnaðarfullum og framsýnum leiðtoga sem býr yfir færni og reynslu til að leiða hóp fagfólks með brennandi áhuga á uppbyggingu og þróun brjóstamyndgreiningar innan Brjóstamiðstöðvar. Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að vera leiðandi fyrir brjóstamyndgreiningu á landsvísu.

Yfirlæknir er leiðtogi og ber faglega ábyrgð og ábyrgð á daglegum rekstri sem stjórnandi einingarinnar í samvinnu við aðra stjórnendur einingarinnar. Auk þess gegnir yfirlæknir mikilvægu hlutverki í kennslu og uppbyggingu vísindastarfs innan sérgreinarinnar.

Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu af brjóstamyndgreiningu og hæfni til að vera í forystu fyrir þjónustu við sjúklinga, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu starfseminnar í nánu samstarfi við stjórnendur Brjóstamiðstöðvar og annað starfsfólk.

Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er yfirlæknir Brjóstamiðstöðvar.

Brjóstamiðstöð er miðpunktur í þjónustu við einstaklinga með sjúkdóma og einkenni frá brjóstum ásamt því að hafa umsjón með framkvæmd brjóstaskimunar á Íslandi. Mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf og þjónustumiðaða nálgun þar sem starfsemin er í stöðugri þróun. Deildin veitir fjölþætta þjónustu og er í fararbroddi fyrir brjóstamyndgreiningu á landsvísu. Starfsaðstaða er góð og deildin er mjög vel tækjum búin.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun brjóstamyndgreiningardeildar

  • Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt

  • Fagleg ábyrgð á menntun og vísindastarfi sem snýr að sérgreininni

  • Ábyrgð á starfsemi brjóstamyndgreiningar gagnvart Geislavörnum ríkisins

  • Fagleg ábyrgð með framkvæmd og úrlestri brjóstaskimunar á landsvísu

  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á einingunni

  • Almenn sérfræðilæknisstörf á brjóstamyndgreiningadeild Brjóstamiðstöðvar

  • Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila

  • Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta

  • Þátttaka í gæða-og umbótastarfi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfæðileyfi í myndgreiningu

  • Breið almenn færni í brjóstamyndgreiningu, klínískri brjóstamyndgreiningu og brjóstaskimun og þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi

  • Umfangsmikil þekking á brjóstaskimun og hæfni til að leiða og skipuleggja skimunarstarf

  • Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar

  • Færni og reynsla í stjórnunarhlutverki

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum með sýn til framtíðar á þeim sviðum

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Ef íslenska er ekki móðurmál er gerð krafa um góða þekkingu og færni í ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðilar

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum.

  • Afrit af lækninga- og sérfræðileyfum sem og vottuð afrit af erlendum leyfum (ef við á).

  • Staðfesting á læknis-, stjórnunar- og kennslustörfum.

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af læknis-, kennslu-, vísinda- og stjórnunarstörfum.

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.

  • Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér, vistar það, fyllir út og sendir með umsókn.

  • Kynningarbréf með framtíðarsýn umsækjenda varðandi starfið og sérgreinina auk rökstuðnings fyrir hæfni.

Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna skv. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, sem hefur aðsetur hjá Embætti landlæknis. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir, yfirlæknir,

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, svanhra@landspitali.is

Sími: 824-5175

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir brjóstamyndgreiningar á Landspítala

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.05.2024

Umsóknarfrestur

31.05.2024