Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í myndgreiningu, brjóstamyndgreiningardeild Landspítala
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.05.2024
Umsóknarfrestur
31.05.2024
Sérfræðilæknir í myndgreiningu, brjóstamyndgreiningardeild Landspítala
Spennandi tækifæri á Brjóstamiðstöð Landspítala!
Við leitum að metnaðarfullum sérfræðingi í brjóstamyndgreiningu sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun sérgreinar og uppbyggingu þverfaglegs teymis Brjóstamiðstöðvar. Deildin er sú eina sinnar tegundar á landinu og er því leiðandi fyrir þjónustuna á landsvísu.
Fjölskylduvænt starf þar sem vinnufyrirkomulag er dagvinna.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er yfirlæknir Brjóstamiðstöðvar.
Brjóstamiðstöð er miðpunktur í þjónustu við einstaklinga með sjúkdóma og einkenni frá brjóstum ásamt því að hafa umsjón með framkvæmd brjóstaskimunar á Íslandi. Mikil áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf og þjónustumiðaða nálgun þar sem starfsemin er í stöðugri þróun. Deildin veitir fjölþætta þjónustu og er í fararbroddi fyrir brjóstamyndgreiningu á landsvísu. Starfsaðstaða er góð og deildin er mjög vel tækjum búin.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn sérfræðilæknisstörf á brjóstamyndgreiningardeild Landspítala
Sérfræðiráðgjöf á Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila
Kennsla og leiðsögn fyrir heilbrigðisstarfsmenn
Vísindarannsóknir tengdar sérgreininni
Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfæðileyfi í myndgreiningu
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Ef íslenska er ekki móðurmál þá er gerð krafa um góða færni og þekkingu í ensku
Breið reynsla af brjóstamyndgreiningu með áherslu á klínískar rannsóknir og úrlestur skimunarrannsókna. Kostur er reynsla af úrlestri segulómrannsókna á brjóstum, en ekki nauðsynleg
Reynsla af kennslu og vísindastörfum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðilar
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta: Sérfræðilæknir, læknir
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2024
Nánari upplýsingar veitir
Svanheiður Lóa Rafnsdóttir, svanhra@landspitali.is
Sími: 824-5175
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknir í myndgreiningu, brjóstamyndgreiningardeild Landspítala
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
03.05.2024
Umsóknarfrestur
31.05.2024